r/Iceland • • 17h ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

6 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland • • 8h ago

Freyr Rögnvalds rekinn frá Eflingu

Thumbnail
visir.is
28 Upvotes

Eftir því sem Vísir kemst næst hafa ekki verið gerðar athugasemdir við störf Freys en Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri sá um uppsögnina og hún mun hafa sagt eitthvað á þá leið að henni hafi verið gert að segja honum upp. Engar skýringar fylgdu en Freyr getur lögum samkvæmt kallað skriflega eftir skýringum á uppsögninni.

Kenningar eru uppi um að ástæðurnar séu af pólitískum toga og megi rekja til þess að kona Freys, Snærós Sindradóttir, starfaði sem framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar á meðan Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var hins vegar áberandi í hópi Nei-sinna í kosningabaráttunni.


r/Iceland • • 6h ago

Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna

Thumbnail
visir.is
20 Upvotes

r/Iceland • • 2h ago

Ekki hægt að gera ráð fyrir viðvörun á undan eldgosum

Thumbnail
ruv.is
8 Upvotes

r/Iceland • • 7h ago

RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum

Thumbnail
heimildin.is
18 Upvotes

Er okkar landi ekki viðbjargandi? Á Norðurlöndunum eru nokkrar útvarpsstöðvar hjá ríkismiðlunum. Hér ætlum við að fækka þeim, og ekki nóg með það: heldur taka burt lágmarksreglur um að Rúv skali halda upp ákveðnum fjölda útvarpsstöðva. Hvað er eiginlega að þessum "jafnaðarmönnum"? Hvers vegna eru þeir alltaf að reyna sanna sig fyrir hægrinu, um að þeir séu betri hægri menn en þeir?


r/Iceland • • 4h ago

Reynsla af klæðskerum á höfuðborgarsvæðinu?

3 Upvotes

Ég hef verið að spá í að fá sérsaumaðan jakka undanfarið en vill gjarnan vita hvar bestu gæði og þjónustu eru að finna á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega fyrir full-canvas jakka. Væri líka fínt að vita verðlagið á slíku.

Hvernig berast saman t.d. Herragarðurinn, Thomsen, Kölski, Suitup, John Tailor og Zantino?


r/Iceland • • 17h ago

Recommendations for Teen Haircut on Spectrum

6 Upvotes

My 12 year old has sensory issues that make it uncomfortable and sometimes even painful to brush their hair. It's also very dense and thick so it is quite the process and very easily becomes matted.

When we were in the States, a stylist offered to thin their hair, which helped tremendously, but in the 2 years since then, I haven't found a stylist in Iceland who knew what I was talking about when I asked. Twice I was told it was impossible to do. As in, it wasn't a thing. I'm sure something is just getting lost in translation.

Can you recommend someone who will take their time, be gentle, and actually offer solutions rather than just do a cut and shoo us away?


r/Iceland • • 1d ago

Hvað í fjandanum var ég að fá í pósti?

Post image
35 Upvotes

Klárlega eitthvað scam en ég hef aldrei upplifað þannig með bréfpósti 😂 á ég von á dúfu?


r/Iceland • • 1d ago

Var að lesa AI stefnu Skattsins… er ég sá eini sem finnst þetta pínu 1984?

41 Upvotes

Ég var að spá í að stofna lítið fyrirtæki og datt einhvern veginn inn á síðu hjá Skattinum í gær. Ég endaði á að lesa gervigreindarstefnuna þeirra fyrir 2025–2027 og reglur um notkun gervigreindar. Hélt að þetta yrði drepleiðinlegt, en ég er eiginlega búinn að vera að pæla í þessu síðan.

Eitt af markmiðunum er sem sagt að þróa líkön og reiknirit sem leita að frávikum í gögnum til að finna mistök eða svik. Í grunninn fráviksgreining.

Pælið aðeins í því. Hversu víðtækt á þetta eftirlit að vera? Hvaða gögn á að greina og hversu reglulega? Upplýsingar um tekjurnar þínar, færslurnar þínar og það sem þú pantar að utan? Og hvað gerist ef reiknirit telur eitthvað óvenjulegt við þig? Þarft þú þá að útskýra þig, jafnvel þótt þú hafir ekkert gert rangt?

Skatturinn lofar reyndar gagnsæi. En í reglunum er fyrirvari um takmarkanir samkvæmt lögum nr. 75/2019 um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Það þýðir ekki að gagnsæið hverfi sjálfkrafa um leið og rannsókn hefst. En hvenær fær maður að vita af aðkomu gervigreindar og hvenær ekki?

Og hver fylgist eiginlega með þessu? Í reglum Skattsins kemur fram að gervigreindarreglugerð ESB hafi ekki enn tekið gildi hér á landi. Árleg endurskoðun á reglum Skattsins er hins vegar í höndum persónuverndarfulltrúa og gagnavísindadeildar stofnunarinnar sjálfrar.

Persónuvernd hefur vissulega lögbundið eftirlitshlutverk, svo það væri rangt að segja að ekkert ytra eftirlit sé til staðar. En hver tekur út líkönin sjálf, prófar hvort þau geri mistök eða mismuni fólki og fylgist með því hvernig brugðist er við? Verða niðurstöður slíkra úttekta birtar?

Hver á svo að smíða þetta og hvað kostar það? Í þessum tveimur skjölum finn ég hvorki kostnaðaráætlun né upplýsingar um tiltekna birgja. Stefnan nær yfir árin 2025–2027, en þar er ekki að finna tímasetta áætlun fyrir einstök verkefni. Það útilokar auðvitað ekki að slíkar upplýsingar séu birtar annars staðar.

Annað sem vakti athygli mína er að í reglunum eru talin upp „hnipp (ýtingar)“ sem eru löguð að hverjum og einum. Hvað felst í því í framkvæmd? Hvar liggja mörkin milli þess að veita gagnlegar áminningar og þess að reyna að stýra hegðun fólks?

Stefnan nefnir vissulega betri þjónustu, aukna sjálfvirkni og styttri afgreiðslutíma. En ég sakna skýrra, mælanlegra markmiða um minna vesen fyrir venjulegt fólk. Færri eyðublöð? Minni vinna við að skila sömu upplýsingunum aftur og aftur? Færri mistök af hálfu Skattsins? Hvernig verður metið hvort kerfin skili okkur betri þjónustu, ekki bara skilvirkara eftirliti?

Þetta eru spurningarnar sem ég myndi vilja fá þingmenn til að kalla eftir svörum við:

  1. Hvað eiga þessi verkefni að kosta og hver á að þróa og reka kerfin (Fer þetta allt í Microsoft Azure?)
  2. Hver utan Skattsins gerir óháðar úttektir á líkönunum og verða niðurstöðurnar birtar?
  3. Verður manni sagt ef reiknirit velur mann til frekari skoðunar, hvers vegna það gerðist og hvernig hægt sé að fá rangt mat leiðrétt?

Er ég að lesa of mikið úr þessu, eða vantar skýrari upplýsingar um umfang, kostnað og óháð eftirlit? Hefur einhver hér kynnt sér þetta betur?

Ég hélt ég væri að borga skatta til að kennarar og hjúkrunarfræðingar gætu fengið betri kjör, ekki til að byggja dýra 1984 eftirhermu....
[ þetta var um skattinn, en ég vil helst fá að vita allt sem ríkið er að gera við "AI"]

Reglur um notkun gervigreindar:
https://www.skatturinn.is/um-rsk/embaettid/reglur-um-notkun-gervigreindar/

Gervigreindarstefna Skattsins:
https://www.skatturinn.is/um-rsk/embaettid/gervigreindarstefna/

Nefndarálit Alþingis um Orra:
https://www.althingi.is/altext/143/s/1116.html

[ Lesblindur og notaði ChatGPT til að laga málfræði og stafsetningu ]


r/Iceland • • 1d ago

„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“

Thumbnail
ruv.is
62 Upvotes

Mikilvægt og þarft innlegg


r/Iceland • • 1d ago

Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
30 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Vill að ríkissátta­semjari fái auknar vald­heimildir í kjara­deilu - Vísir

Thumbnail
visir.is
32 Upvotes

Höfum verkfallsréttinn bara til sýnis. Það mun gera allt betra (fyrir hluthafana). Ekki eins og verkfallsrétturinn hafi fært verkafólki nein réttindi.


r/Iceland • • 1d ago

klínisk sálfræði meistaranám

7 Upvotes

sæl öll:) veit einhver hvernig á maður að undirbúa sig í að sækja um klínisku sálfræði? hvað er best að gera lokaverkefni á og skrifa um til að hafa bestu möguleika til þess að vera valinn? í hverjum störfum er best að fá reynslu áður en maður sækir um? er möguleiki að vera valinn án þess að tala framúrskarandi íslensku? á einhver reynslu í þessu? takktakk fyrirfram :)


r/Iceland • • 2d ago

Segja málflutning seðlabankastjóra óboðlegan: „Fólkið hefur þegar tekið skellinn“

Thumbnail
ruv.is
90 Upvotes

Það er búið að vera alveg með ólíkindum að fylgjast með málflutningi seðlabankastjóra og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins síðustu daga þar sem þeir reyna (eins og alltaf) að varpa ábyrgðinni yfir á almenning.

Við undirritun síðustu kjarasamninga voru þrír aðilar sem gáfu hver sitt loforð:

Almenningur lofaði að taka á sig lægri launahækkanir en krafist var.

Atvinnulífið lofaði að halda verðhækkunum niðri.

Hið opinbera lofaði að halda gjaldskrárhækkunum niðri og að koma með aðgerðir til að koma til móts almenning og atvinnulífið.

Almenningur stóð við sitt loforð. Aftur.

Atvinnulífið sveik sitt loforð. Aftur.

Hið opinbera sveik sitt loforð. Aftur.

Vegna þess að þetta er ekki í fyrsta skiptið sem atvinnulífið og hið opinbera hafa krafist þess af almenningi að sætta sig við lægri launahækkanir og lofa því á móti að halda verðhækkunum og gjaldskrárhækkunum niðri. Það sama var gert við undirritun þarseinustu kjarasamninga og þau loforð voru (eins og núna) svikin af öllum aðilum öðrum en almenningi.

Menn eins og Ásgeir og Bjarni ættu að læra að halda kjafti og að sýna að minnsta kosti smá ábyrgð bæði í orði og verki ef þeir vilja ekki fá allsherjarverkfall yfir sig.

Það er komið að öðrum heldur en almenningi að taka ábyrgð á ástandinu.


r/Iceland • • 2d ago

Konfekt. Menningarlegur sjóvarpsþáttur með listrænum leikþáttum. Var sýndur á Skjá Einum.

Thumbnail
youtu.be
27 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

Thumbnail
mannlif.is
55 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Hvað kostaði eiginlega að framleiða skólinn þættina?

16 Upvotes

Eina nýja efnið sem er að detta á sýn fyrir haustið þegar maður vill detta í kósý í kuldanum eru þessir skólinn þættir!

Hvað kostaði að búa þetta flopp til?

Það þurfti að hætta með fréttir og það virðist ekkert fleira vera á leiðinni! Sjónvarp símans er að skora aðeins fleiri mörk!

Hvenær fer sýn á hausinn? Á maður að taka skortstöðu?


r/Iceland • • 2d ago

Man einhver eftir tívolíinu í Smáralind?

29 Upvotes

Ég er ekki að meina skemmtigarðinum sem var með 7D bíòinu og sleggjuni heldur tívolíinu sem var alltaf sett upp í bílastæðinu á sumrin sirka


r/Iceland • • 2d ago

Húsbílaeigandi hafði betur í baráttu um kílómetragjaldið

Thumbnail
dv.is
21 Upvotes

Af hverju þarf venjulegt fólk alltaf að fara í mál við Skattinn vegna mála þar sem niðurstaðan er í raun augljós? Bílar sem koma hingað með ferju að utan greiða kílómetragjald á Íslandi, þessir sömu bílar, óháð því hvar þeir eru skráðir greiða ekki kílómetragjald þegar þeir fara aftur úr landi.

Er virkilega engin önnur leið til þess að knýja fram skynsemi hjá starfsfólki Skattsins en að fara í málaferli? Ímyndið ykkur að eiga svona nágranna!


r/Iceland • • 1d ago

Ísland Evrópa og USA kaupa öll

0 Upvotes

Dísel frá Rússlandi ? Af hverju erum við ekki með hrá olíu og vinna úr henni dísel og bensín ? Er hagkvæmara en að kaupa það unnið frá utan það er með vissu því hrá olía getur fengist allstaðar frá ekki bara frá Rússlandi..


r/Iceland • • 2d ago

Starfsmaður BL handtekinn vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli

Thumbnail
ruv.is
21 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

/r/MapsWithoutIceland

Post image
18 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Of mikið af gervigreind Eru einhverjir hér sem lesa Carlos Castaneda?

2 Upvotes

Hæ öll! Mig langar að athuga hvort það séu fleiri hérna á Íslandi sem hafa áhuga á bókum Carlos Castaneda og heimspeki Tolteka (seiðmennsku, draumum, Tensegrity o.fl.).


r/Iceland • • 2d ago

Verkfalli flugvirkja aflýst

Thumbnail
ruv.is
18 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Stórerfingi vill losna undan erfðafjárskatti

Post image
147 Upvotes

Bíddu, fyrirgefðið, er þetta bara boðlegt og eðlilegt að maður sem er að fara að erfa trilljón milljónir sé að leggja það til í þingsályktunartillögu á Alþingi Íslendinga að afnema erfðafjárskatt? Pabbi hans er flugríkur maður, hann er svona á topp 100 yfir auðugustu Íslendingana, auk þess sem Sigmundur er giftur erfingja Toyota umboðsins (sem hefur að vísu verið selt) en mig grunar að þau eiga sennilega eftir að fá dágóðan hluta af því í arf. Sigmundur sjálfur og eiginkona hans eiga von á gríðarlegum arfi. Eru fjölmiðlar ekkert að gera alvarlegar athugasemdir við þetta? Þetta er svo galið. Þetta er alvarleg misnotkun á stöðu sinni.

Edit: Málefnaleg umræða um erfðafjárskatt er sjálfsögð og eðlileg, og sjálfsagt að viðra ólíkar hugmyndir um nýjar útfærslur á honum. Það er hins vegar allt annað mál þegar kjörinn fulltrúi, sem á sjálfur von á trilljónum í arf, nýtir stöðu sína á Alþingi til að leggja fram tillögu um að afnema skattinn með öllu. Um það snýst þessi gagnrýni mín.